5.4.2007 | 21:45
Byggingakranar og fagurfræði
Nú er svo komið að í Reykjavíkog nágrenni er erfitt að finna sjónarhorn sem ekki er mengað af byggingakrönum.
Mér þóttu byggingakranar aldrei fallegir en eftir að ég fór að taka meira af ljósmyndum þá fóru þeir að vera hrein plága. Meðan að mikið er af fallegum sjónarhornum hérna á höfuðborgarsvæðinu þá er fátt sem skemmir góða ljósmynd meira en stæðilegur byggingakrani sem að teygir sig langt inn í Esjuna eða hvað það er sem maður er að taka mynd af.
Nú vonar maður að þetta leiði til þess að við fáum hugsanlega ný og áhugaverð mótíf til að mynda og margar nýbyggingar og framkvæmdir eru það vissulega, þar má nefna tónlistarhúsið, en kynningar á því lofa mjög góðu og verður það vafalítið mikið myndað eftir að það rís.
Þá er bara að vona að þegar þessum miklu framkvæmdum lýkur að maður geti skammlaust myndað tónlistarhúsið, önnur mannvirki og landslagið umhverfis Reykjavík án þess að á það skyggi þéttur skógur byggingakrana eins og nú.
Um bloggið
Indriði Ingi Stefánsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.